Lína Móey Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Leigumanna ehf., og Sigurður Karlsson, framkvæmdastjóri hjá ICERT og sérfræðingur í endurskoðun hjá EY, eiga von á barni. Lína Móey fann ástina á ný þegar hún kynntist Sigurði.
Hún missti eiginmann sinn, John Snorra Sigurjónsson, í febrúar 2021 þegar hann reyndi að komast fyrstur manna á topp fjallsins K2 að vetrarlagi. John Snorri var einn færasti fjallagarpur landsins.
Lína Móey og John Snorri eiga tvo syni sem eru fimm og sjö ára gamlir. Auk þess átti hún dóttur fyrir sem nú er 22 ára. Sigurður á tvö börn af fyrra sambandi, dóttur sem er tvítug og son sem er níu ára.
Barnavefur mbl.is óskar þeim hjartanlega til hamingju!