Færri unglingar sofa of lítið og klukkuþreyta minnkar þegar skólinn byrjar seinna samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var í Vogaskóla og tveimur samanburðarskólum, Ölduselsskóla og Laugalækjaskóla.
Megin niðurstöður voru að unglingar í Vogaskóla vakna marktækt seinna en unglingar í samanburðarskólunum tveimur og er munurinn um 40 mínútur. Unglingar í öllum skólunum fara að sofa á svipuðum tíma.
Ekki var munur á meðal svefnlengd unglinga heilt yfir eftir skólunum en mun færri unglingar í Vogaskóla sofa undir viðmiðum, eða sjö klukkutíma eða minna, eða 4% á móti 25% í hinum skólunum tveimur.
Svefn unglinga í Vogaskóla var mun jafnari yfir vikuna og þeir sýna mun minni klukkuþreytu (e. social jetlag) en nemendur í hinum skólunum. Klukkuþreyta nam 46 mínútum að meðaltali í Vogaskóla en 109 mínútum í hinum skólunum sem byrja klukkan 8.30.
Klukkuþreyta myndast þegar fólk er vansvefta á virkum dögum en sefur mikið um helgar til að bæta það upp. Þetta er algengt meðal unglinga og hefur margvísleg neikvæð áhrif á heilsu og líðan og tengist til að mynda lakari námsárangri, auknum hegðunarvanda og aukinni áhættu á ofþyngd meðal unglinga.
Viðhorfskönnun meðal nemenda og kennara sýndi að mikill meirihluti var ánægður með seinni skólabyrjun. Um helmingi nemanda finnst svefninn vera betri og segjast fá mun lengri svefn á virkum dögum. Enginn nemandi upplifði verri svefn eða meiri þreytu við þessa breytingu.
Flestir kennaranna eða 85% voru ánægðir með breytinguna sem hafi haft jákvæð áhrif á skólastarfið og vildu flestir halda seinkaðri byrjun skóladags áfram.
Að rannsókninni stóðu Betri svefn, Reykjavíkurborg, Háskólinn í Reykjavík og Embætti landlæknis.