„Við hjónin eigum tvö börn, 5 og 10 ára. Til að byrja með hlupum við þrjú saman því stelpan var svo ung. Hún kom með okkur í fyrsta sinn í fyrra, þá í kerru. Við tökum þátt á hverju ári því þær minningar sem við höfum skapað í Color run eru okkur svo dýrmætar. Það er ekki hægt að rifja þær upp án þess að brosa,“ segir Erna Björg.
Þau segja það skemmtilegasta við hlaupið sé samvera fjölskyldunnar og gleðin sem viðburðinum fylgir svo ekki sé minnst á litadýrðina. „Þ að myndast ákveðin stemning sem erfitt er að lýsa. Það hefur verið virkilega gaman að flygjast með syni okkar styrkjast á milli ára og kom okkur á óvart hvað það var mikill kraftur í honum í fyrra. Ómetanlegt hvað hlaupið hefur haft áhrif á jákvætt viðhorf hans til hreyfingar. Okkur hlakkar sérstaklega til þetta árið því yngsti fjölskyldumeðlimurinn ætlar að skella á sig hlaupaskónna. Það verður því enn skemmtilegra fyrir fjölskylduna að hlaupa öll saman í ár. Okkur þykir líka mjög spennandi að hlaupið sé í Laugardalnum þetta árið,“ segir Erna Björg full tilhlökkunar.