Einungis fyrir þá allra hugrökkustu

Rennibrautin er sú hæsta sinnar tegundar í heiminum og alls …
Rennibrautin er sú hæsta sinnar tegundar í heiminum og alls ekki fyrir viðkvæma. Ljósmynd/ArceloMittalOrbit

Fyrir þá allra hugrökkustu er í boði að fara í æsispennandi rennibraut sem fer á rúmlega 25 km hraða heila 178 metra. Ferðin tekur örstutta stund og er að sögn þeirra sem hafa farið alls ekki fyrir viðkvæma en vinsælt er að skora á vini til að fara í þessa hættuför.

Rennibrautin, sem er í 80 metra hæð, hringar sig 12 sinnum í kringum ArcelorMittal sporbaugin og því líklegt að ofurhugarnir sem láta plata sig í ferðina verði ansi ringlaðir í ríminu við lendingu. Ofan af rennibrautinni má sjá fagurt útsýni yfir borgina áður en lagt er af stað og geta glöggir gestir séð glitta í St. Pauls dómkirkjuna, Big Ben og Canary Warf, fjármálahverfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert