Vinkonurnar Alexandra Helga Ívarsdóttir og Móeiður Lárusdóttir njóta þess að vera á frönsku rivíerunni þessa dagana. Tap manna þeirra með íslenska landsliðinu virðist ekki hafa haft mikil áhrif á konurnar sem njóta nú alls þess sem Cannes hefur upp á að bjóða.
Alexandra Helga er gift Gylfa Þór Sigurðssyni en Móeiður býr með Herði Björgvini Magnússsyni í Moskvu þar sem Hörður leikur knattspyrnu.
Í dag, miðvikudag, birtu þær myndir af sér við hótelið InterContinental Carlton Cannes. Hótelið er fimm stjörnu lúxushótel við sjóinn. Það gerist ekki betra í Cannes.
Cannes í Frakklandi er þekktur dvalarstaður þeirra ríku og frægu en mikið er um fín hótel og veitingastaði á svæðinu. Stórstjörnur flykkjast þangað á vorin þegar kvikmyndahátíðin í Cannes fer fram.