Parið Kody Workman og Kelly Castille hefur atvinnu af því að ferðast um heiminn. Þau birta reglulega myndir af sér sem líta út fyrir að þau hafi lagt líf sitt í hættu við að ná hinni fullkomnu mynd.
Þau birtu eina slíka á dögunum sem hefur fengið mikla athygli. Á myndinni situr Workman á klettabrún og heldur í kærustu sína sem stendur á klettabrúninni undir honum. Myndin var tekin í Andesfjöllunum í Perú. Margir hafa bent á að þetta geti verið stórhættulegt og segja þetta einstaklega heimskulega hegðun.
View this post on InstagramA post shared by KELLY + KODY (@positravelty) on Aug 28, 2019 at 8:33am PDT
Sumir hafa einnig bent á að þó að þetta hafi í raun verið öruggt, þá séu þau áhrifavaldar sem geti gefið öðrum þá hugmynd að þetta sé ekki hættulegt. Þegar þeir reyni svo að leika þetta eftir geti orðið slys.
Workman og Castille sögðust í viðtali við Insider ekki hafa lagt líf sitt að veði til að ná myndinni og að sér fyndist gaman að leika sér með sjónarhorn.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem parið kemst í fréttir fyrir glæfralega myndbirtingu. Þá birtu þau mynd af Castille hangandi fram af sundlaugarbrún á Balí.
View this post on InstagramA post shared by KELLY + KODY (@positravelty) on Apr 2, 2019 at 7:27am PDT