Töluverður verðmunur er á kaffisopanum á flugvöllum landsins, eins og kom í ljós þegar verð var borið saman á fjórum helstu flugvöllum landsins sem sinna innanlandsflugi, þ.e.a.s. Egilsstöðum, Akureyri, Reykjavík og Ísafirði.
Þannig kostar uppáhelling á flugvellinum á Egilsstöðum 350 krónur, á Reykjavíkurflugvelli 380 kr. en 390 kr á flugvellinum á Akureyri. Ódýrast er kaffið á flugvellinum á Ísafirði. Þar er ekki rekin nein kaffitería eins og á hinum þremur flugvöllunum en drykkir eru fáanlegir úr sjálfsala og kaffi fáanlegt úr kaffivél. Kaffið er frítt en gestir eru reyndar hvattir til þess að skilja klink eftir í bauk hjá kaffivélinni.
Verðmunurinn á kaffisopanum er enn meiri ef kaffidrykkir á borð við Cappuccino og Caffe latte eru bornir saman. Á Akureyrir kosta slíkir drykkir 490 kr. og í Reykjavík 550 kr. Ódýrastir eru þeir á flugvellinum á Egilsstöðum eða 450 krónur. Ferðalangar sem eru virkilega hagsýnir bíða þó líklega með það drekka kaffi þar til í loftið er komið enda frítt kaffi í boði í öllu innanlandsflugi hjá Airicelandconnect.
Af ofantöldu er líklega best að lenda í seinkun á flugi á Ísafirði þar sem þamba má frítt kaffi eða te þar til farið er í loftið. Á Egilsstöðum er reyndar aðstaðan í flugstöðinni sérlega góð og farþegar sem lenda þar í seinkun geta ekki bara keypt sér kaffidrykki á hagstæðu verði heldur geta þeir líka hreiðrað um sig í leðursófum á efstu hæðinni. Gestum er einnig boðið upp á ruggustóla á fyrstu hæðinni. Eins er vert að nefna að á kvennasalerninu eru ókeypis dömubindi og túrtappar, nokkkuð sem ekki er í boði í hinum flugstöðvunum þremur.