Bresk fimm manna fjölskylda ætlaði að gera vel við sig nú í sumar og splæsti í lúxusferð til Egyptalands. Þegar fjölskyldan vaknaði við framkvæmdir á fyrsta degi var henni ljóst að paradísin var ekki eins og henni var lýst á netinu.
Hjónin Linda og Paul Secular bókuðu tveggja vikna dvöl á hótelinu Cleopatra Luxury Resort Makadi Bay í Hurghada Egyptalandi. Með þeim í för voru 17 ára sonur þeirra, Mark, dóttir þeirra Amy og kærastinn hennar, Joe. Þau eyddu rúmlega 7 þúsund pundum í ferðina eða um 1,1 milljón íslenskra króna.
Fjölskyldan kom á hótelið að kvöldi til eftir langt ferðalag og fóru beint í háttinn. Morguninn eftir vöknuðu þau við framkvæmdir. Þeim var tjáð að framkvæmdirnar væru aðeins tímabundnar og myndi ljúka innan skamms.
Framkvæmdunum lauk þó ekki meðan á dvöl þeirra stóð og fjölskyldunni var brátt ljós að þær myndir sem þau hefðu séð á bókunarsíðunni væru ekki af raunverulegu ástandi hótelsins.
Cleopatra Luxury Resort er gríðarlega stórt fimm stjörnu hótel og var þeim strax ljóst að þau hefðu getað fengið herbergi annars staðar á hótelinu. Þau hins vegar lentu í miðju framkvæmdasvæðinu. Þeim var boðið að færa sig, en þorðu ekki að gera það vegna sonarins Mark sem er einhverfur.
Stöðugur hávaðinn frá framkvæmdunum gerði það að verkum að Mark leið gríðarlega illa. Ekki bætti úr skák að á þeim tveimur vikum sem fjölskyldan eyddi þarna var teknó-ball haldið á ströndinni svo hávaðinn var óbærilegur. Hótelið hafði verið auglýst sem fjölskylduvænn staður.
Hrakfarir fjölskyldunnar eru fleiri því að feðgarnir Paul og Mark fengu báðir í magann og voru rúmliggjandi í tvo sólarhringa. Þegar magapínan var afstaðin var bréf sett undir hurðina hjá fjölskyldunni sem tilkynnti þeim að um e. coli-smit væri að ræða og var gestunum ráðlagt frá því að borða ávexti og grænmeti á svæðinu.
Fjölskyldan kvartaði og var boðið nudd í skaðabætur. Nuddið, sem átti að vera í boði hússins, var þó meðtalið á reikningi fjölskyldunnar eftir dvölina. Þau kvörtuðu yfir því og var boðið 400 pund í inneign eða 360 pund í reiðufé.
Linda og Paul voru bæði bálreið yfir framkomu hótelsins og heita því að bóka aldrei frí hjá þeim aftur. „Það er kaldhæðnislegt, orðið lúxus er í nafni hótelsins, en það er enginn lúxus við þetta hótel,“ sagði Paul bálreiður í viðtali við The Sun.