Selma Björnsdóttir flaug beint til Parísar eftir að tökum á þættinum Allir geta dansað lauk á föstudaginn. Selma var mætt til Parísar á laugardaginn þar sem hún hefur notið lífsins með kærasta sínum, Kolbeini Tuma Daðasyni.
Leikhúskonan Selma og fjölmiðlamaðurinn Kolbeinn Tumi hafa verið saman í rúmt ár. „Good vibrations í París,“ skrifaði Kolbeinn Tumi á Instagram og vísaði þar með í lag The Beach Boys um leið og hann birti mynd af sjálfum sér og Selmu. Selma hefur einnig birt paramynd af þeim í París.
Það er ekki að ástæðulausu að París er kölluð borg ástarinnar, að minnsta kosti virðist ást þeirra Selmu og Kolbeins Tuma blómstra í borginni.
View this post on InstagramA post shared by Selmabjorns (@selmabjorns) on Feb 2, 2020 at 3:48pm PST
View this post on InstagramA post shared by Kolbeinn Tumi Dadason (@kolbeinntumi82) on Feb 1, 2020 at 6:11pm PST