Pör sem fóru í frí rétt fyrir skilnað

Brad Pitt og Jennifer Aniston fóru í frí saman rétt …
Brad Pitt og Jennifer Aniston fóru í frí saman rétt fyrir skilnað. REUTERS

Það er ekki óalgengt, að minnsta kosti í heimi hinna ríku og frægu, að skella sér í frí rétt fyrir skilnað. Af hverju ekki að gefa sambandinu einn séns í viðbót? Á vef E! er rifjað upp nokkur ferðalög sem stjörnupör fóru í rétt áður en þau ákváðu að skilja.

Brad Pitt og Jennifer Aniston

Eftir stöðugan orðróm um að Pitt væri að halda fram hjá með mótleikkonu sinni, Angelinu Jolie, fóru hjónin Pitt og Aniston í frí. Þau voru mynduð á ströndinni á Bahamaeyjum um áramót með vinum sínum Courtney Cox og þáverandi eiginmanni hennar,  David Arquette. Nokkrum dögum síðar eða þann 7. janúar 2005 tilkynntu Pitt og Aniston um skilnað. 

Jennifer Aniston og Justin Theroux

Aniston og Theroux sögðu í tilkynningu í febrúar 2018 að þau hefðu tekið ákvörðun um að skilja í lok árs árið 2017. Þau fóru þó saman í frí til Cabo í Mexíkó á svipuðum tíma þar sem þau fögnuðu nýju ári. Var það í síðasta skipti sem parið var myndað saman. 

Jennifer Aniston og Justin Theroux.
Jennifer Aniston og Justin Theroux. AFP

Chris Martin og Gwyneth Paltrow 

Leikkonan og Coldplay-söngvarinn fóru saman í frí til Hawaii ásamt börnum sínum til þess að fagna komu ársins 2014. Hjónin höfðu þá nýlega fagnað tíu ára brúðkaupsafmæli. Nokkrum vikum síðar tilkynntu þau um skilnað. Þau borðuðu einnig saman á Bahamaeyjum nokkrum klukkutímum eftir að tilkynning um skilnað birtist í fjölmiðlum. 

Gwyneth Paltrow og Chris Martin.
Gwyneth Paltrow og Chris Martin. AFP

Ashton Kutcher og Demi Moore

Leikarahjónin fyrrverandi voru mynduð saman í fríi við vatnið Cachuma í Kaliforníu stuttu eftir að Kutcher var sakaður um framhjáhald. Aðeins mánuði seinna greindi Moore frá skilnaði þeirra. 

Demi Moore og Ashton Kutcher.
Demi Moore og Ashton Kutcher. REUTERS



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert