Geosea-sjóböðin á Húsavík eru á lista yfir fallegustu heilsulindir í heimi á ferðavefnum Condé Nast Traveller. Örfáar heilsulindir á eftirsóttum stöðum á borð við New York, Ítalíu og Mexíkó eru taldar upp ásamt sjóböðunum á Húsavík.
Heilsulindirnar sem taldar eru upp eru allar í bókinni Be Well þar sem fjallað er um ótrulega flottar heilsulindir víða um heim. Heilsulindirnar eiga það meðal annars sameiginlegt að búa yfir einstökum arkitektúr.
Ferðavefur mbl.is benti á áhugaverða staði á Húsavík í nýlegri grein og voru sjóböðin þar á blaði. „Einstaklega notalegt er að baða sig í heitum sjónum og um leið horfa yfir til Kinnarfjallanna handan flóans,“ skrifaði blaðamaður.
Aðrar heilsulindir sem þóttu skara fram úr voru meðal annars Friedrichsbad í Baden-Baden í Þýskalandi en hún er mjög glæsileg og var upphaflega byggð árið 1877. Géllert Thermal Bath í Búdapest í Ungverjalandi komst einnig á lista en sú heilsulind opnaði fyrst árið 1918. Einnig voru nýtískulegri heilsulindir á borð við The Well í New York í Bandaríkjunum og Loong Swim Club í Suzhou í Kína á lista.