Breski söngvarinn Robbie Williams segist hafa flutt tímabundið frá Bandaríkjunum til Sviss á meðan kórónuveirufaraldurinn gengur yfir. Þetta kom fram í viðtali við Steve Wright á BBC Radio 2.
Í viðtalinu segir Williams að hann búi nú tímabundið uppi á fjalli í Sviss til þess að komast hjá því að smitast af COVID-19 og viðurkennir um leið að hann sé eilítið taugaveiklaður.
„Ég er smá taugaveiklaður og ég hugsaði með mér hvar ég gæti verið til þess að forðast veiruna. Þá datt mér í hug að búa á Mont Blanc í sex mánuði. Það er í raun mjög hlýtt hér og yndislegt.“
Þá segist hann ekki geta beðið eftir að fara aftur að vinna og koma fram en hann segir þennan tíma mjög erfiðan fyrir fólk í tónlistargeiranum.
„Þetta hefur mikil áhrif á tónlistargeirann. Ég er svo þakklátur fyrir það sem ég geri og ég get ekki beðið eftir að taka aftur til starfa. Ég elska tímann með fjölskyldunni; eiginkonunni og fjórum börnum – þetta er mikill gleðitími – en mig langar að komast út úr húsi og gera það sem ég elska að gera,“ segir Williams.