Dreymir þig um að gista á einkaeyju? Nú er þessi fjarlægi draumur aðeins raunverulegri þar sem gisting er víða ódýrari en áður. Hægt er að leigja eyjuna Valle Falconere við Ítalíu á spottprís, sérstaklega ef hópur eða stórfjölskylda ferðast saman.
Nóttin kostar ekki nema 591 pund eða rúmlega 105 þúsund krónur. Ef öll svefnplássin 16 eru nýtt kostar nóttin á einkaeyjunni ekki nema um 6.500 krónur. Ef það er einhvern tímann tími til að vera á einkaeyju þá er það þegar heimsfaraldur er í gangi.
Eyjan er nálægt Feneyjum og á Airbnb-síðu hennar kemur fram að húsið á henni er dæmigerður sveitabær fyrir Feneyjasvæðið. Í húsinu eru sex svefnherbergi. Gestir hafa aðgang að allri eyjunni en ferðalangar þurfa að fara í bátsferð til þess að komast á hana. Bátsferðin tekur ekki nema átta mínútur frá Cavallino – Treporti-kirkju.