Sex mánaða á sjóskíðum

Rich Casey Humpherys er aðeins sex mánaða en getur þó …
Rich Casey Humpherys er aðeins sex mánaða en getur þó staðið á sjóskíðum. Skjáskot/Instagram

Foreldrar hins sex mánaða Rich Casey Humpherys sjá til þess að litli drengurinn þeirra lifir ævintýralegu lífi. Litli kúturinn er með vinælsan Instagram reikning og varð allt vitlaust þegar hann fór á sjóskíði á vatni í Utah í Bandaríkjunum. 

„Ég fór á sjóskíði í tilefni af sex mánaða afmælinu mínu,“ stóð skrifað við mynd af Humpherys litla á Instagram-síðu hans. Vildu foreldrar hans greinilega meina að þetta væri heimsmet en myllumerkið heimsmet fylgdi með færslunni. 

Þrátt fyrir að ungbarnið lítur afar krúttlega út á skíðunum eru ekki allir sammála að þetta sé í lagi. Margir telja barnið full ungt fyrir að fara á sjóskíði. 

View this post on Instagram

I went water skiing for my 6 month birthday. Apparently that’s a big deal… #worldrecord

A post shared by Rich Casey Humpherys (@richcaseyhumpherys) on Sep 12, 2020 at 7:04pm PDT

Faðir hans, Casey Humpherys, virðist hafa smíðað sjóskíðin sjálfur eins og hann sýndi á Instagram-síðu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert