Fólk sem hetir Orlando flýgur frítt

Orlando Bloom gæti nýtt sér Orlando-tilboðið.
Orlando Bloom gæti nýtt sér Orlando-tilboðið. AFP

Ýmislegt er reynt til þess að fjölga ferðamönnum. Flugfélagið Frontier Airlines býður nú öllum þeim sem bera nafnið Orlando að fljúga með flugfélaginu til Orlando í Flórída. Átakið er líður í átakinu Visit Orlando. 

Í þjóðskrá má finna yfir 20 manns sem bera nafnið Orlando. Fólkið er skráð til heimilis á Íslandi sem og erlendis. Það er aldrei að vita hvort það fólk geti nýtt sér tilboðið. Fólk verður að fljúga á tímabilinu 13. til 20. október. Frestur til að ná sér gjafabréfið fyrir frímiðanum rennur út 5. október. 

Komið er í veg fyrir að fólk svindli á flugfélaginu og breyti nafninu til þess eins að næla sér í frímiða til Orlando. Einn frægasti Orlando heims er leikarinn Orlando Bloom. Spurning hvort hann þarf á frímiða að halda?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert