Ísland í öllu sínu veldi í stiklu Clooneys

Hér má sjá George Clooney í myndinni The Midnight Sky …
Hér má sjá George Clooney í myndinni The Midnight Sky á Íslandi. Skjáskot/Youtube

Kvikmyndin The Midnight Sky í leikstjórn George Clooneys verður frumsýnd á Netflix í desember. Myndin, sem skartar einnig hollywoodstjörnunni í aðalhlutverki, var að hluta til tekin upp á Íslandi í fyrra og sést það vel í nýútkominni stiklu myndarinnar. 

Tökur fóru fram á Skálafellsjökli fyrir ári. Í stiklunni má sjá falleg landslagsskot frá Íslandi sem og hollywoodstjörnuna Clooney í erfiðum aðstæðum í ofsaveðri í snjónum. Á dögunum greindi Clooney frá því hversu erfiðar aðstæður voru á Íslandi í tökunum. Það hefur þó verið vel þess virði enda setur kuldinn mikinn svip á stikluna. 

Kvikmyndin The Midnight Sky er byggð á bók­inni Good Morn­ing Midnig­ht. Skáld­sag­an er eft­ir banda­ríska höf­und­inn Lily Brooks-Dalt­on. Sag­an ger­ist eft­ir að siðmenn­ing hef­ur að mestu lagst af og fjall­ar um tvo eft­ir­lif­end­ur sem reyna að halda sam­bandi til að hjálp­ast að við að ná átt­um í því sem hef­ur gerst. Ann­ar eft­ir­lif­enda er vís­indamaður sem er fast­ur á heim­skautinu og hinn er geim­fari, fast­ur í geim­skip­inu Aet­her. Reyna þeir að kom­ast af og vinna sam­an að áætl­un til að finna fleiri eft­ir­lif­end­ur.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka