Dýrustu borgir í heimi árið 2020 eru Hong Kong, Zürich og París. Þetta eru niðurstöður nýrra mælinga á vegum Economist Intelligence Unit á því hvar er dýrast að búa. Kórónuveiran hafði áhrif á listann í ár.
Í fyrra voru Singapore og Osaka í fyrsta sæti ásamt Hong Kong en féllu niður listann á í ár. Ástæðan er kórónuveirufaraldurinn. Staðir í Afríku, Ameríku og Austur-Evrópu eru jafnframt sagðir ódýrari eftir að faraldurinn fór á skrið í mars. Vestur-Evrópa er hins vegar orðin dýrari og er Genf í sjöunda sæti og Kaupmannahöfn í því níunda.
1. - 3. París í Frakklandi.
1. - 3. Hong Kong.
1. - 3. Zürich í Sviss.
4. Singapore.
5. Osaka í Japan.
6. Tel Avív í Ísrael.
7. Genf í Sviss.
8. New York-borg í Bandaríkjunum.
9. Kaupmannahöfn í Danmörku.
10. Los Angeles í Bandaríkjunum.