Veitingageirinn er harður bransi og veitingastaðir koma og fara. Sumir virðast þó standast tímans tönn. Flestir eru þeir í Evrópu og þá hæg heimatökin að heimsækja þegar betur árar í heiminum. Ferðavefurinn tók saman nokkra mjög gamla og góða veitingastaði sem vert er að heimsækja:
Veitingastaðurinn St Peter Stiftskulinarium var opnaður í Austurríki árið 803 og bar þá fram tafelspitz (soðið nautakjöt með maukuðum eplum og næpu).
Veitingastaðurinn Wurstkuchl var opnaður árið 1146 í Regensburg í Þýskalandi. Staðurinn er þekktur fyrir þýskar pylsur og súrkál.
Veitingastaðurinn The Old House í Wales á Bretlandseyjum hóf rekstur árið 1147 og bar á borð bökur með kartöflum og baunum.
The Sheep Hide Inn hefur borið fram steikur og steikta sveppi frá árinu 1360.
Veitingastaðurinn Honke Owariya í Japan hefur verið að matreiða soba-núðlur og tempura frá árinu 1465.