Ferðaþjónustuaðilar hafa aldeilis þurft að brydda upp á nýjum hugmyndum í kórónuveirufraldrinum. Neyðin kennir naktri konu að spinna og allt það en það verður að viðurkennast að sumar hugmyndir hafa verið heimskulegri en aðrar. Hér má sjá nokkrar furðulegar nýjungar í ferðabransanum.
Flug án áfangastaða
Flugfélög tóku upp á því að fara í flug án áfangastaða. Ferðirnar, sem voru fordæmdar af umhverfisverndarsinnum, voru stílaðar á fólk sem saknaði þess að fara um borð í flugvél.
Drykkjarvagnar til sölu
Ástralska flugfélagið Qantas svalaði ferðaþorsta Ástrala þegar það setti fullútbúna drykkjarvagna úr Boeing 747-vélum sínum á sölu. Til stóð að selja vagnana í brotajárn en á þessum fordæmalausu tímum ákvað félagið að kanna áhugann á þeim.
Flugvélaveitingastaður
Taílenska flugfélagið Thai Airways opnaði „pop-up“-veitingastað í höfuðstöðvum sínum í Bangkok þar sem innviðirnir og þjónustan minnti á það að vera um borð í flugvél. Gestir sátu í flugvélasætum og áhöfnin gekk um í fullum skrúða og þjónustaði gesti.
Lúxustjöld á flugvelli
Nýlega bárust fréttir af nýjum gistimöguleika á flugvellinum Jewel Changi í Singapúr. Um er að ræða glæsilegu (e. glamping) en flugvöllurinn er einn sá flottasti í heimi. Lítið er að gera um þessar mundir og því hægt að bjóða upp á gistikost á furðulegum stað.