Fellsfjara á Breiðamerkursandi, eða Diamond Beach eins og erlendir ferðamenn kalla ströndina, er í 11. sæti á lista Tripadvisor yfir bestu strendur Evrópu. Fellsfjara stingur eilítið í stúf á listanum enda önnur tveggja svartra stranda á listanum. Reynisfjara er hin svarta ströndin á listanum en hún er í 14. sæti.
Notendur Tripadvisor völdu á dögunum bestu strendur Evrópu fyrir árið 2021. Bestu ströndina í heimsálfunni er að finna í bænum Lampedusa á Ítalíu, ströndina Spiaggia dei Conigli.
„Ein perla heimsins. Hvít strönd, túrkisblátt vatn, kælandi andvari frá sjónum. Búðu þig undir 20 mínútna göngu til að komast að ströndinni, en þegar þú kemur þangað mun þér líða eins og þú sért ekki á jörðinni,“ segir um Spiaggia dei Conigli.
Í öðru sæti er að finna Playa de Cofete á Spáni og í þriðja sæti er Praia da Falesia í Portúgal.