Leikarinn Liam Hemsworth virðist ekki láta gagnrýni heimamanna í Byron Bay á sig fá. Í vikunni skellti Hemsworth sér á ströndina við Byron Bay með kærustunni sinni Gabrielle Brooks.
Með þeim í för voru hundurinn hans Dora og franskur bolabítur sem þau ættleiddu saman. Parið virtist skemmta sér vel á ströndinni með hundum.
Hemsworth og bróðir hans búa báðir í Byron Bay og eru heimamenn síður en svo sáttir við veru þeirra í bænum. Áhrifin eru þau að fjöldi stjarna heimsækir flóann reglulega og fasteignaverð hefur hækkað mikið.