Uppgötvaði heila íbúð bak við spegil

Samantha Hartsoe fann heila íbúð bak við baðherbergisspegilinn.
Samantha Hartsoe fann heila íbúð bak við baðherbergisspegilinn. Samsett mynd

Samantha Hartsoe varð heldur betur hissa þegar hún uppgötvaði að heil íbúð leyndist bak við baðherbergisspegilinn í íbúð hennar í New York. Hartsoe fór upphaflega á stúfana því að furðulegur dragsúgur myndaðist við spegilinn á baðherberginu.

Hún kíkti þá á bak við spegilinn og komst að því að þar var rými. Hún hunsaði allt sem hún hafði lært af hryllingsmyndum, setti á sig höfuðljós og grímu, tók upp hamarinn og fór að kanna hvað meira leyndist bak við spegilinn.

Hartsoe birti myndbönd af svaðilför sinni á samfélagsmiðlinum TikTok og hafa myndböndin notið mikilla vinsælda. 

Í hinni leyndu íbúð fann hún haug af ruslapokum, opna glugga og vatnsflösku sem hún kallaði „merki um líf“. 

„Ég var eiginlega farin að búast við að hitta einhvern þarna, sérstaklega út af vatnsflöskunni og það gerði mig frekar stressaða,“ sagði Hartsoe í viðtali við New York magazine. En hún hitti þó engan. Íbúðin var illa farin, upprifin gólf og glitti í lagnir hér og hvar.

Ekkert klósett eða baðherbergi er í íbúðinni og það er mögulega ástæðan fyrir því að enginn býr í henni. Tilvist íbúðarinnar kom ekki bara Hartsoe á óvart en hún segir að umsjónarmaður hússins hafi ekki vitað af henni.

Samantekt af tiktokmyndböndum Hartsoe má finna hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert