Sjötug á sundbolnum á Havaí

Jane Seymour nýtur lífsins á Havaí.
Jane Seymour nýtur lífsins á Havaí. Skjáskot/Instagram

Fyrrverandi Bond-stúlkan Jane Seymour naut sín á ströndinni við Havaí í vikunni en Seymour varð sjötug 15. febrúar síðastliðinn. 

Seymour var í fríi á hinni heillandi eyju með börnum sínum og barnabörnum. Hún klæddist ljósbláum sundbol og var með litríkt skjal yfir herðunum. 

Seymor lauk nýverið við tökur á kvikmyndinni The War with Grandpa ásamt Robert De Niro og kvikmyndinni Friendsgiving en hún fer auk þess með hlutverk í The Kominsky Method. 

View this post on Instagram

A post shared by @guysandpeople

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert