Brúðkaupsferðir fræga fólksins

Amal og George Clooney fóru í brúðkaupsferð til Seychelles.
Amal og George Clooney fóru í brúðkaupsferð til Seychelles. mbl.is/AFP

Brúðkaupsferðir fræga fólksins geta gefið manni góðar hugmyndir fyrir næstu ferðalög. Oftast verða rómantískar strendur á fjarlægum slóðum fyrir valinu. Þá er Ítalía einnig ofarlega á listum fræga fólksins. 

1. George og Amal Clooney - Seychelles

Strendur Seychelles eru hreinar og fínar.
Strendur Seychelles eru hreinar og fínar. Unsplash.com

Clooney-hjónin völdu Seychelles-eyjar fyrir brúðkaupsferð sína. Þar bregða þau út af vananum en Ítalía er alltaf í miklu uppáhaldi hjá þeim og eiga þau hús við Como-vatnið. Brúðkaupið var hins vegar haldið á Ítalíu og því kannski ekki að undra að þau hafi valið einhvern allt annan stað fyrir brúðkaupsferðina.

2. Pippa Middleton og James Matthews - Ástralía og Franska-Pólýnesía

Óbyggðir Ástralíu kölluðu á Pippu Middleton og James Matthews.
Óbyggðir Ástralíu kölluðu á Pippu Middleton og James Matthews. Unsplash.com

Pippa Middleton og James Matthews fóru á mjög svo fjarlægar slóðir eða alla leið til Frönsku-Pólýnesíu þar sem þau dvöldu á lúxussetri Marlon Brando. Eftir það flugu þau til Ástralíu og dvöldu um tíma í glæsitjöldunum Longitude 131 þar sem er ótrúlegt útsýni yfir Uluru.

3. Heidi Klum og Tom Kaulitz - Capri, Ítalíu

Heidi Klum og eiginmaður hennar fóru til Capri.
Heidi Klum og eiginmaður hennar fóru til Capri. Skjáskot/Instagram

Ofurfyrirsætan Heidi Klum giftist Tom Kaulitz á eyjunni Capri. Svo sigldu þau um strendur Ítalíu í lúxussnekkju. 

4. Tom Daley og Dustin Lance Black - Havaí

Tom Daley og eiginmaður hans áttu góða daga á Havaí.
Tom Daley og eiginmaður hans áttu góða daga á Havaí. Skjáskot/Instagram

Dýfingameistarinn Tom Daley og eiginmaður hans Dustin Lance Black skelltu sér til Havaí og nutu lífsins. Þar fóru þeir í fjallgöngur og sóluðu sig á ströndinni í góðu yfirlæti.

5. Geri Halliwell og Christian Horner - Cannes

Kryddpían Geri Halliwell og eiginmaður hennar fóru til Suður-Frakklands.
Kryddpían Geri Halliwell og eiginmaður hennar fóru til Suður-Frakklands. Skjáskot/Instagram

Kryddpían Geri Halliwell og eiginmaður hennar fóru til Cannes í brúðkaupsferð. Þar áttu þau rólega daga við sundlaugina og fóru í skoðunarferðir um gamla bæinn.

6. Ashton Kutcher og Mila Kunis - Kalifornía

Ashton Kutcher og Mila Kunis ferðuðust um Kaliforníu.
Ashton Kutcher og Mila Kunis ferðuðust um Kaliforníu. mbl

Leikarahjónin Ashton Kutcher og Mila Kunis hafa almennt lifað hæglátu lífi. Þau gefa börnunum sínum ekki jólagjafir og völdu að ferðast innanlands í brúðkaupsferðinni sinni sem er kannski ekki svo slæmt þegar maður býr í Kaliforníu. Þau keyrðu um vínhéruð Kaliforníu þar á meðal Napa Valley og áttu góða daga – reyndar var nýfædd dóttirin með í för. 

7. Kim Kardashian og Kanye West - Írland

Kardashian-West-hjónin fóru til Írlands. Nú eru þau að skilja.
Kardashian-West-hjónin fóru til Írlands. Nú eru þau að skilja. AFP

Kardashian-West-hjónin gerðu nokkuð óvenjulegt og fóru til Írlands í brúðkaupsferð. Þau dvöldu í kastala í Limerick-héraði og voru einnig á fimm stjörnu hóteli í Laois þar sem rómantíski pakkinn kostar litlar 200 þúsund krónur nóttin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert