Bandaríska flufélagið Delta Air Lines byrjar að fljúga daglega milli Íslands og þriggja borga í Bandaríkjunum í maí næstkomandi. Þar á meðal er Boston, sem er nýr áfangastaður. Hinar borgirnar eru New York og Minneapolis/St. Paul en þangað hefur Delta flogið undanfarin ár ef 2020 er undanskilið.
Fyrsta flugið er á dagskrá á verkalýðsdaginn 1. maí og þá verður flogið til New York. Fyrsta flug til Bostin er áætlað 20. maí og til Minneapolis/St. Paul 27. maí.
Ákvörðun Delta um að hefja daglegt flug milli Bandaríkjanna og Íslands byggist á því að Ísland er fyrsta Evrópulandið til að heimila komu bandarískra ferðamanna sem hafa fengið fulla bólusetningu án þess að þeir þurfi að fara í sóttkví. Ísland er þannig fyrsti áfangastaðurinn í Evrópu sem stendur ferðaþyrstum Bandaríkjamönnum auðveldlega til boða frá því að heimsfaraldurinn byrjaði fyrir ári.
„Við vitum að viðskiptavinir okkar eru spenntir fyrir því að komast með öruggum hætti aftur út í heim. Eftir því sem traust á ferðalögum eykst vonumst við til að fleiri lönd opni fyrir bólusettum ferðamönnum og skapi þannig aukin tækifæri fyrir fólk til að tengja og upplifa,“ segir Joe Esposito, framkvæmdastjóri leiðakerfisstýringar Delta Air Lines.
Farþegar Delta frá Bandaríkjunum þurfa að færa sönnur fyrir fullri bólusetningu eða að þeir hafi náð sér af Covid-19-sýkingu. Farþegar til Bandaríkjanna munu þurfa að sýna neikvæða niðurstöðu úr Covid-19-skimun.