Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans, Katrín hertogaynja, gengu í hjónaband fyrir tíu árum. Áður en fullorðinslífið tók við slettu þau stundum úr klaufunum og gerðu það meðal annars í partíferð til spænsku eyjunnar Ibiza árið 2006.
Á Ibiza dvöldu þau á heimili móðurbróður Katrínar, Garys Goldsmiths. Goldsmith er duglegur að tala um systurdóttur sína og hefur nokkrum sinnum talað um ferð Katrínar og Vilhjálms til Ibiza að því er fram kemur á vef The Sun.
„Þau fóru í bátsferðir. Þau fóru á strandbari. Þau fengu Ibiza-stemninguna beint í æð og skemmtu sér mjög vel,“ sagði frændinn. Vilhjálmur er sagður hafa fengið kennslu hjá vini Goldsmiths í að þeyta skífum fyrir veislu eitt kvöldið. „Kóngurinn er í húsinu,“ ætlaði Vilhjálmur að segja þegar hann spilaði gott lag.
Ferðin til Ibiza árið 2006 á að hafa lukkast vel. Vilhjálmur er til að mynda sagður hafa hringt í eigendur skemmtistaðarins Pacha eftir skemmtilegt kvöld og þakkað fyrir sig.