Fólk er byrjað að ferðast utan aftur eftir kórónuveirufaraldurinn. Athafnakonan og áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir og kærasti hennar Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor fóru fullbólusett til Amsterdam í vikunni.
Gummi „kíró“ eins og hann er kallaður greindi frá því á Instagram að þau væru fullbólusett og tilbúin í eðlilegt líf og ferðalög aftur. „Fyrsta stopp Amsterdam,“ skrifaði hann.
Parið hefur notið sín í borginni og meðal annars komið við í hönnunarbúðum en þau eru þekkt fyrir áhuga sinn á dýrum merkjavörum. Þau hafa einnig birt myndir af sér borða girnilegan mat í sólinni.
Parið elskar að ferðast og er duglegt að greina frá því á samfélagsmiðlum. Þau hafa verið tíðir gestir á íslenskum hótelum á undanförnum misserum. Þau fóru reyndar líka til útlanda síðasta sumar þegar flestir héldu sig til heima.