Britney fór beint til Havaí eftir vitnisburðinn

Britney Spears og Sam Asghari njóta nú lífsins á Havaí.
Britney Spears og Sam Asghari njóta nú lífsins á Havaí. Skjáskot/Instagram

Söngkonan Britney Spears og kærasti hennar Sam Asghari flugu til Havaí á miðvikudaginn síðastliðinn. Fyrr um daginn hafði Spears ávarpað dómara í lögráðamannsmáli hennar en mikið hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum undanfarna daga. 

Heimildamaður Us Weekly segir að Asghari hafi tryggt að hann gæti varið tíma sínum með Spears eftir að hún ávarpaði dómarann á miðvikudag. Parið flaug svo til Havaí en þangað fara þau reglulega í frí. 

Á hótelinu sem þau parið eru reglulegir gestir á geta þau fengið mikið næði frá fjölmiðlum og aðdáendum söngkonunnar. 

„Þau elda sér bragðgóðan mat, ferskan og hollan. Hún borðar hreina fæðu núna og fer í ræktina með Sam á sama tíma og hún vinnur í andlegu hliðinni,“ sagði heimildamaðurinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert