Anna Kristjáns kvartar yfir kulda á Tenerife

Anna Kristjánsdóttir býr á Tenerife.
Anna Kristjánsdóttir býr á Tenerife. Ljósmynd/K100

Vélstjórinn Anna Kristjánsdóttir hefur búið á Tenerife í nokkur ár. Hún segir vetur konung vera mættan til Tenerife en hún þurfti að klæðast síðbuxum og flíspeysu á sunnudagskvöldið. Gert er ráð fyrir að Íslendingar að fjölmenni til Tenerife yfir jólin en veðurspáin lítur ekki vel út eins og fram kemur út í pistli Önnu á Facebook:

„Það er kominn vetur í Paradís. Og ég er ekki að skrökva. Eftir sæmilegan sólardag og 23°C hámarkshita í gær, kólnaði svo snögglega að þegar bingóið var haldið á O'Learys Vinabæ var ég komin í síðbuxur, flíspeysu og með sultardropa í nefinu. Aukinheldur var hitinn dottinn niður í 18°C klukkan 21:00 og ég renndi flíspeysunni upp í háls svo ekki slægi að mér. Ekki er spáin gæfuleg fyrir næstu viku. Hámarkshitinn á miðvikudag á einungis að vera 20°C, en lægsti hámarksdaghiti sem ég man eftir síðan ég flutti hingað fyrir rúmum tveimur árum var 19°C síðasta vetur og þá var sko kalt í Paradís. Aðfararnótt fimmtudags á lágmarkshitinn að fara niður í 15°C og þá fer nú að versna í því maður minn.

Ég man þá tíð er ég lá í sólbaði á aðfangadag jóla fyrir tveimur árum síðan. Reyndar kólnaði þá um áramót og hefur verið ískalt í Paradís á veturna samanber snjóalög og ófærð til fjalla síðasta vetur, en óþarfi að láta kuldann bitna á okkur fyrir miðjan desember. Ég sé Grænhöfðaeyjar í hillingum, jafnvel Sankti Helenu, þ.e. eyjuna en ekki hana Helenu vinkonu mína í næsta húsi, en mér skilst að hún liggi á um það bil 15°S þarafleiðandi ávallt sumar þar, þ.e. á eyjunni en ekki Helenu vinkonu minni í næsta húsi,“ skrifaði Anna meðal annars. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert