Þó það hafi aðeins vantað upp á snjóalög í og við höfuðborgarsvæði þennan veturinn þá gerði vetur konungur vart við sig á hálendi Íslands strax í nóvembermánuði á síðasta ári.
Hinn 20. nóvember var ferðinni heitið upp á Fjallabak á Suðurlandi en þar eru frábærar aðstæður til þess að ferðast á vélsleða yfir vetrartímann.
Við tókum af bílunum við Rauðuskál og þaðan lá leiðin í átt að Krakatindum sem teygja sig upp í 1.012 metra hæð.
Þar er stór hraunbreiða sem var undirlögð að snjó og eftir hana lá leiðin framhjá Sléttafelli sem er í 908 metra hæð.
Við enduðum svo í Dalakofanum í Reykjadölum, í jaðri Torfajökulssvæðisins að Fjallabaki, þar sem við borðuðum nesti áður en farið farið að huga að heimferð.
Á bakaleiðinni var ekið í vesturátt áður en við komum niður aftur á milli Krakatinda og Sléttufells en þaðan lá leiðin aftur að Rauðuskál þaðan sem brunað var í bæinn.
Það ættu að vera góð snjóalög á Fjallabaki í dag þrátt fyrir vonskuveður undanfarna daga og það er spáð mikilli snjókomu á hálendinu á næstu dögum sem hentar vel fyrir sleða- og skíðaþyrsta Íslendinga.
Það ætti því ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að fólk geti skellt sér í sleða- eða skíðaævintýri á hálendi Íslands í kringum helgina, ef veðurspáin leyfir.