Giljaböðin talin ein þau bestu

Giljaböðin eru talin á meðal þeirra bestu í heimi.
Giljaböðin eru talin á meðal þeirra bestu í heimi.

Giljaböðin í Húsafelli eru á lista ferðaskrifstofunnar Culture Trip yfir það besta sem hægt er að upplifa á ferðalögum árið 2022. Mælt er með því að heimsækja böðin að kvöldi til yfir veturinn því þá sé mögulega hægt að sjá norðurljósin. 

Culture trip er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í að bjóða upp á ferðalög þar sem lagt er ríka áherslu á menningu staðanna sem heimsóttir eru. 

„Þessi nokkuð óþekkti staður opnaði nýverið og eru öll innviði sjálfbær og byggja á menningararfleifð staðarins eins og best er á kosið. Slakaðu á í notalegu vatninu og taktu inn hið magnaða útsýni í leiðinni,“ segir um Giljaböðin. 

Giljaböðin við Húsafell opnuðu fyrir fáeinum árum og hafa á skömmum tíma orðið gríðarlega vinsæl. Um er að ræða manngerðar laugar með náttúrustein úr nágrenninu og í þær er síðan veitt heitt vatn. Skipulagðar ferðir eru farnar frá Húsafelli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert