Uppáhaldsstaður áhrifavalda gjörbreyttur

Það sem áður var bleikt er nú gult á veitingastaðnum …
Það sem áður var bleikt er nú gult á veitingastaðnum Sketch. Samsett mynd

Veitingastaðurinn Sketch er einn heitasti staðurinn í Lundúnaborg. Staðurinn var þekktur fyrir bleikar innréttingar og var vinsælt að birta myndir af sér á Instagram af staðnum. Nú hefur staðurinn breyst töluvert og er orðinn gulur. 

Staðurinn opnaði árið 2014 í hinu fína Mayfair-hverfi og varð fljótlega afar vinsæll. Það var arkitektinn India Mahdavi sem sá um að hönnunina á kandíflosbleiku innréttingunum og sá einnig um gulu endurhönnunina að því fram kemur á vef Condé Nast Traveller. Nú hefur hulunni verið svipt af nýja útlitinu. 

High Tea að hætti Sketch.
High Tea að hætti Sketch. Ljósmynd/Sketch

Það er spurning hvort að guli liturinn slái í gegn hjá áhrifavöldum og öðrum sem elska að taka fallegar myndir af sér og birta á samfélagsmiðlum. Íslenskar samfélagsmiðlastjörnur hafa meðal annars verið duglegar að koma við á staðnum.

Árið 2019 greindi Ferðavefurinn frá því að samfélagsmiðlastjörnurnar Móeiður Lárusdóttir og Alexandra Helga Ívarsdóttir hefðu gert sér ferð á staðinn. Athafnakonan Lína Birgitta Sig­urðardótt­ir og stjörnukírópraktor­inn Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son hafa einnig borðað á staðnum en þau eru þekkt fyrir að vera með puttana á púlsinum þegar lúxus og góður matur er annars vegar. Plötusnúðurinn DJ Dóra Júlía greindi einnig frá því fyrir nokkrum árum að staðurinn væri í uppáhaldi hjá henni í viðtali á matarvef mbl.is. 

View this post on Instagram

A post shared by sketch (@sketchlondon)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert