Leikkonurnar Helga Braga Jónsdóttir og Kristín Pétursdóttir taka til starfa sem flugfreyjur hjá Icelandair á næstunni. Stöllurnar útskrifuðust úr flugfreyjuskóla Icelandair ásamt fleirum góðum flugfreyjum í vikunni.
Helga Braga starfaði bæði hjá Iceland Express og hjá WOW. Kristín Pétursdóttir starfaði einnig hjá flugfélaginu WOW.
„Útskrifaðist sem flugfreyja hjá Icelandair í dag,“ skrifaði Helga Braga á Instagram. „Velkomið fallega flugsumar!“
Kristín greindi einnig frá nýja starfinu á sínum samfélagsmiðlum. Sagði hún að töfrandi tímar væru framundan í sögu á Instagram.
María Gomez sem heldur úti lífstíls- og matarblogginu Paz.is útskrifaðist einnig úr flugfreyjuskóla Icelandair. María starfaði meðal annars sem flugfreyja hjá Iceland Express og segir í sögu á Instgram að henni finnist frábært að koma aftur inn eftir 17 ára pásu frá flugbransanum.