Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir og kærasti hennar Benedikt Bjarnason eyddu páskunum í sjöunda himni í Róm á Ítalíu.
Sunneva hefur birt fjölda mynda úr ferðinni á Instagra en parið virðist vera njóta alls þess besta sem ítalska höfuðborgin hefur upp á að bjóða. Birti hún mynd af sér við Spænsku tröppurnar og skoðuðu þau einnig tromp Rómaborgar, Trevi-gosbrunninn, fallega.
„Ég held ég sé í himnaríki,“ skrifaði Sunneva við mynd af sér þar sem hún er böðuð gylltum sólargeislum og með vínglas í hönd.