Íslenskir ríkisborgarar geta ferðast til 180 landa án þess að þurfa til þess fyrirframfengna vegabréfsáritun. Vegabréfið íslenska situr í 12. sæti á svokallaðri vegabréfsvísitölu Henleys fyrir árið 2022.
Vísitalan, eða listinn, heldur utan um lönd sem borgarar komast til með vegabréfum landa sinna án sérstakrar vegabréfsáritunar, en sem stendur er Japan í efsta sæti listans. Þau sem eiga japanskt vegabréf geta komist til 193 landa án þess að fá vegabréfsáritun.
Singapúr og Suður-Kórea sitja saman í 2. sæti og geta farið til 192 landa án vegabréfsáritunar.
Bandaríkin og Bretland færðust niður á listanum á þessu ári og eru nú í sjötta og sjöunda sæti listans.
Úkraína hefur færst upp á listanum og geta þau sem ráða yfir úkraínsku vegabréfi komast til 144 ríkja án sérstakrar vegabréfsáritunar.