Icelandair tilkynnir í dag Tel Aviv sem nýjan áfangastað. Flogið verður þrisvar í viku frá Keflavíkurflugvelli, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum frá 10. maí til 29. október. Flugtíminn frá Íslandi er um sjö klukkustundir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu
Tel Aviv er næststærsta borg Ísrael og þar er að finna fallegar strendur, fornminjar og söfn. Einnig er stutt að fara frá Tel Aviv til áhugaverðra staða á við Jerúsalem, Jórdaníu, Betlehem og Dauðahafið.
Spurn eftir flugi frá Tel Aviv til Íslands hefur aukist undanfarið samhliða fjölgun ísraelskra ferðamanna. Auk þess er flogið á tíma sem hentar vel til tenginga við flug Icelandair til Bandaríkjanna og Kanada.
„Tel Aviv er spennandi nýr áfangastaður sem passar vel inn í viðskiptalíkan okkar en mikil eftirspurn er eftir ferðum á milli Ísrael og Bandaríkjanna. Þá er þetta einnig góð viðbót við flóruna sem Íslendingum stendur til boða í beinu flugi en Tel Aviv býður upp á skemmtilega blöndu menningar, sögu og sólarstranda,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri flugfélagsins, í tilkynningunni.