Fráskilin en ferðast samt saman

Sean Penn og Robin Wright eiga saman tvö börn.
Sean Penn og Robin Wright eiga saman tvö börn. Samsett mynd

Margir héldu að Robin Wright og Sean Penn væru byrjuð aftur saman þegar það sást til þeirra saman á flugvelli á dögunum en þau eru bæði á lausu og eiga sér langa sögu um stormasamt samband. 

Wright var hins vegar fljót að leiðrétta þann misskilning og segir þau aðeins verja tíma saman fyrir tilstilli barna þeirra. Saman eiga hjónin fyrrverandi tvö börn, Dylan og Hopper.

„Við vorum á leið saman á viðburð með börnunum okkar. Við verðum alltaf fjölskylda, hvort sem við erum sundur eða saman. Mér finnst það fallegt og vildi að allir gætu haft það þannig.“

„Það er mikil gjöf að geta verið vinur barnsföður síns.“

Þrátt fyrir þessar yfirlýsingar Wright hafa fjölmiðlar bent á að þau hafa afar sjaldan sést saman eftir skilnaðinn, nánast aldrei. Parið byrjaði að draga sig saman árið 1989 og voru stöðugt að byrja og hætta saman þar til þau giftu sig árið 1996. 

Þau tilkynntu svo um skilnað í desember árið 2007 en hættu við fjórum mánuðum síðar. Sama gerðist í apríl 2009 þar sem þau hættu við skilnaðinn mánuði síðar. En í ágúst sama ár sóttu þau svo um skilnað og stóðu við þá ákvörðun. Skilnaðurinn gekk í gegn árið 2010 og þau hafa ekki sést saman síðan - þar til nú.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert