Tökur á annarri þáttaröð Rings of Power fara nú fram á sólareyjunni Tenerife. Fyrsta þáttaröðin var sú dýrasta sem framleidd hefur verið í heimi en þættirnir fjalla um forsögu ævintýra J.R.R. Tolkien Hobbitanum og Hringadróttinssögu.
Tökurnar fara meðal annars fram í bænum Juan de la Rambla á norðurströnd Tenerife.
Amazon framleiðir þættina, en fyrsta serían var að mestu tekin upp í Bretlandi. Búist er við því að önnur sería verði líka tekin upp að hluta til í Bretlandi.
Wall Street Journal greindi frá því á síðasta ári að fyrsta sería Rings of Power kostaði að minnsta kosti 715 milljónir bandaríkjadala í framleiðslu.
Í vikunni var greint frá því að leikararnir Ciarán Hinds, Rory Kinnear og Tanya Moodie myndu bætast við leikarahóp þáttanna. Með hlutverk í þáttunum fara líka Oliver Alvin-Wilson, Stuart Bowman, Gavi Singh Chera, William Chubb, Kevin Eldon, Will Keen, Selina Lo, Calam Lynch, Gabriel Akuwudike, Yasen Atour, Ben Daniels, Amelia Kenworthy, Nia Towle og Nicholas Woodeson