Fólk sem bókaði flug til Tenerife um páskana virðist hafa tekið rétta ákvörðun. Það er spáð rigningu víða yfir páskahátíðina á Íslandi en sólin ætlar hins vegar að skína á sólþyrsta Íslendinga á eyjunni fögru um páskana.
Þegar veðurspá BBC er skoðuð fyrir Tenerife má sjá alveg þurra páskahelgi. Hitinn er vel yfir 20 gráðum og er alls ekki mælt með því að opna páskaeggið úti þar sem á sunnudaginn fer hitinn upp í 26 gráður.
Það er þó margt annað hægt að gera á sólríku eyjunni um páskana en að háma í sig páskaegg. Útivistarkonan Vala Húnbogadóttir greindi frá því í viðtali við ferðavef mbl.is í síðustu viku að eyjan væri full af fallegum gönguleiðum. Áður en hún fór fyrst til Tenerife var hún með fordóma.
„Tenerife hefur ítrekað verið valið besta svæði Evrópu til að fara í gönguferðir á veturna, þó að landfræðilega séð sé eyjan vissulega ekki í Evrópu. Hægt er að velja á milli 173 gönguleiða og 43 verndarsvæði til að skoða,“ sagði Vala.