Flugfélagið PLAY hefur hafið flokkun á áldósum um borð í flugvélum sínum. Breytingar á verkferlum um borð tóku gildi í lok apríl en með tilkomu nýrra regla frá Umhverfisstofnun og Matvælastofnun var flugfélögum loks gert kleift að flokka um borð. PLAY hafði hvatt yfirvöld til að breyta regluverkinu frá upphafi rekstrar þannig að flugfélög gætu flokkað sorp sem fellur til í flugi. Til þessa hafa áldósir og almennur úrgangur frá flutningstækjum í alþjóðlegri umferð endað í brennslu.
„Við erum í skýjunum með að það sé loksins orðið að veruleika að dósir séu flokkaðar um borð. Við höfum lengi kallað eftir þessum breytingum eða í raun frá upphafi rekstrarins. Nýju reglurnar hafa nú gefið okkur aukið svigrúm til að flokka sorp um borð og á síðustu vikum höfum við unnið hörðum höndum að því að tryggja að allir innviðirnir séu tilbúnir til þess að fylgja þessum breytingum eftir og ganga úr skugga um að álið endi alveg örugglega á réttum stað. Ísland er klárlega framarlega í þessum málum en árið er nú samt 2023 og það er nýlega búið að breyta þessum reglum. Fluggeirinn verður ekki sjálfbærri en umhverfið utan um iðnaðinn, ekki bara á Íslandi heldur út um allan heim. Enn og aftur fagna ég því að við séum farin að flokka áldósir um borð og það er magnað að sjá hvað áhafnir og farþegar taka vel í þessar breytingar,“ segir Ingibjörg Karlsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni hjá PLAY.
108 tonn af úrgangi í fyrra
PLAY leggur mikla áherslu á sjálfbærnimál og flokkun um borð er eitt þeirra verkefna sem unnið er að. Flugfélagið áætlar að um 108 tonn af úrgangi hafi komið frá flugvélum félagsins árið 2022. Næsta skref hjá PLAY er að byrja flokka pappa og plast og er vinna við þær breytingar þegar hafin.
Fleiri mikilvæg skref hafa verið tekin í sjálfbærnivegferð PLAY á undanförnum mánuðum. Til að mynda leggur félagið upp úr plastlausum umbúðum utan af mat sem seldur er um borð og að áhafnir noti fjölnota hnífapör. Fjölnota hnífapör fyrir áhafnir voru innleidd í september 2022 og á tímabilinu september til desember 2022 má áætla að komið hafi verið í veg fyrir að rúm 300 kíló af einnota plasthnífapörum færu í ruslið.