Athafnakonan og matarstílistinn, Linda Benediktsdóttir, og eiginmaður hennar Ragnar Einarsson gengu í hjónaband hinn 14. september á síðasta ári og eru nú að fagna ástinni í sólríkri brúðkaupsferð á Majorka.
Linda hefur verið dugleg að birta fallegar ferðamyndir á Instagram og er greinilegt að hjónin eru yfir sig ástfangin, lukkuleg og í algjörri hjónabandssælu.