Ofurfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner hefur verið dugleg að birta sjóðheitar og seiðandi bikinímyndir af sér á ströndinni síðastliðna viku.
Jenner er ekki óvön því að vera fyrir framan myndavélina og stillti sér upp í myndatöku á ströndinni, en hún er sögð stödd í fríi með nýjum kærasta, tónlistarmanninum Bad Bunny sem heitir réttu nafni Benitos Antonios Martínez Ocasios.
Fyrirsætan birti myndir af sér við tignarleg pálmatré með kristalbláan sjóinn í bakgrunni. Hún virðist hafa notið sín til hins ýtrasta á ströndinni og eytt megninu af fríinu á sundfötunum ef marka má myndirnar.