Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, nýtur nú lífsins ásamt kærustu sinni, Friðþóru Sigurjónsdóttir á grísku eyjunni Krít.
Það er búið að vera brjálað að gera hjá unga tónlistarmanninum enda á hann nokkur af heitustu lögum sumarsins og er þetta því án efa kærkomin hvíld.
Patrik og Friðþóra byrjuðu saman síðastliðið sumar og fagna því eins árs sambandsafmæli sínu um þessar mundir. Parið er afskaplega ástfangið og hefur birt nokkrar myndir frá þessari sólríku perlu í Miðjarðarhafinu.