Flugfélagið Play fór í sitt fyrsta flug til Toronto í Kanada frá Keflavíkurflugvelli í gær. Toronto bætist í hóp áfangastaða í Bandaríkjunum sem flogið er til daglega, en Play flýgur einnig daglega til New York, Baltimore, Boston og Washington DC.
Í ár flýgur Play til hátt í 40 áfangastaða og er Toronto fimmti áfangastaður flugfélagsins í Norður-Ameríku. Félagið er með tíu Airbus A320/321neo farþegaþotur í flota sínum sem er sá yngsti í Evrópu.
„Þetta er mikill áfangi fyrir okkar unga flugfélag að vera búið að stækka markaðssvæði sitt enn frekar í Norður-Ameríku. Fyrr á árinu bættust við daglegar ferðir til Washington DC og nú einnig til Toronto. Þessir tveir áfangastaðir munu styrkja tengiflugið okkar á milli Norður-Ameríku og Evrópu til muna og það mun sjást á farþegatölum okkar á næstu mánuðum,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.
„Á sama tíma og farþegafjöldinn eykst og sætanýtingin sömuleiðis, þá hafa meðaltekjur af hverjum farþega hækkað til muna. Við erum að ná stærðarhagkvæmninni og jafnvæginu í rekstrinum sem við höfum lagt áherslu á að ná og með þessum stórkostlega áfanga í dag að hefja flug til Toronto er með sanni hægt að segja að Play sé komið til að vera,“ bætir Birgir við.