Gulli Helga sextugur í Portúgal

Gulli Helga ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Valsdóttur og tveimur af …
Gulli Helga ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Valsdóttur og tveimur af fjórum börnum þeirra. Samsett mynd

Gunnlaugur Helgason, einn ástsælasti útvarpsmaður þjóðarinnar, fagnaði sextugsafmæli sínu um helgina í faðmi fjölskyldunnar. 

Í tilefni merkisafmælisins bauð Gunnlaugur, betur þekktur sem Gulli Helgi, eiginkonu sinni Ágústu Valsdóttur, börnum, tengdabörnum og barnabörnum í dýrindis fjölskyldufrí til Portúgal þar sem þau hafa notið samverunnar í sólinni síðastliðna daga. 

Hlýjar afmæliskveðjur á samfélagsmiðlum

Ágústa og elsti sonur Gulla, Helgi Steinar blaðamaður á Viðskiptablaðinu, birtu bæði fallegar kveðjur á samfélagsmiðlum í tilefni afmælisbarnsins. 

„Elsku besti betri helmingurinn minn á daginn í dag og fagnar 60 ára afmælisdeginum sínum með okkur fjölskyldunni saman. Hann er einfaldlega sá besti sem ég gæti hugsað mér að eyða ævinni með og vona ég að árin eigi eftir að verða mörg, mörg í viðbót.

Svo erum við svo óendanlega heppin með börnin okkar fjögur, tengdabörn og tvö yndisleg barnabörn sem fagna með okkur í Portúgal. Gulli, ég elska þig út fyrir endimörk alheimsins. Til hamingju, elskan,“ skrifaði Ágústa til eiginmanns síns á Facebook. 

Helgi Steinar skellti einnig í einlæga afmæliskveðju frá sér og ungum syni sínum í tilefni pabba og afa gamla. 

„Til hamingju með stórafmælið elsku pabbi! Gulli Helgason er 60 ára í dag og í tilefni af því bauð hann allri fjölskyldunni til Portúgal! Það er búið að vera svo gaman hjá okkur öllum og Stefán Karl er búinn að skemmta sér eins og konungur í sinni fyrstu utanlandsferð með afa sínum og pabba! Takk fyrir allt saman, elsku pabbi!,“ skrifaði Helgi Steinar. 

Ferðavefurinn óskar Gulla Helga innilega til hamingju með merkisafmælið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert