Berbrjósta í fríi með fyrrverandi

Fyrrverandi stjörnuparið Irina Shayk og Bradley Cooper eru stödd í …
Fyrrverandi stjörnuparið Irina Shayk og Bradley Cooper eru stödd í fríi saman. Samsett mynd

Ofurfyrirsætan Irina Shayk birti á dögunum mynd af sér berbrjósta í fríi með fyrrverandi eiginmanni sínum, leikaranum Bradley Cooper. Fyrirsætan hefur verið áberandi í fjölmiðlum vegna meints ástarsambands hennar og NFL-stjörnunnar Tom Brady. 

Shayk birti myndaröð af sér berbrjósta ofan á grýttu landslagi við sjávarbakkann, en hún birti einnig mynd af Cooper sem lá ber að ofan á kajak á sama stað. Fyrrverandi parið hætti saman árið 2019 eftir fjögurra ára samband, en þau eiga saman sex ára dótturina Lea De Seine.

Hvað með Brady?

Myndirnar hafa vakið mikla athygli, þá sérstaklega fyrir þær sakir að Shayk er sögð vera að stinga saman nefjum með Brady, en þau hafa bæði sést saman í Los Angeles og Lundúnum. Brady var áður giftur ofurfyrirsætunni Gisele Bündchen, en þau skildu í október síðastliðnum eftir 13 ára hjónaband og er Brady því að feta sín fyrstu fótspor í ástarlífinu eftir skilnaðinn. 

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Shayk og Cooper fara saman í frí eftir sambandsslitin, en þau voru stödd á Bahamaeyjum fyrir ári síðan þar sem þau virtust njóta sín í botn. 

View this post on Instagram

A post shared by irina shayk (@irinashayk)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert