Býr til tíma fyrir vellíðan á ferðalögum

Tisdale finnst afar gaman að ferðast.
Tisdale finnst afar gaman að ferðast. Skjáskot/Instagram

Bandaríska leikkonan Ashley Tisdale leggur mikið upp úr heilsusamlegum lífsstíl. Hún hefur séð til þess að heilsan sé alltaf í fyrsta sæti og hefur komið sér upp góðum venjum til þess að geta viðhaldið heilsunni á ferðalögum. Í viðtali við Forbes segist hún til dæmis taka alltaf frá tíma til þess að hugleiða, jafnvel þótt hún sé á ferð og flugi.

Hvert ferðu þegar þú þarft að hlaða batteríin?

„Ég elska að fara á staði þar sem eru strendur. Hafið hefur svo róandi áhrif á mig. Ég fór nýlega til Havaí og Cabo með fjölskyldu minni. Slíkar ferðir eru endurnærandi.“

Hvaða ferð hefur breytt þér?

„Ég elska að ferðast með dóttur minni! Við fórum til Havaí með mömmu minni og það var svo sérstök upplifun. Það er magnað að fá tækifæri til þess að lifa í núinu og njóta gæðastunda saman.“

Hvernig hlúirðu að sjálfri þér á ferðalögum?

„Ég hef lært að vellíðan er ekki bara eitthvað sem maður stundar um helgar heima hjá sér. Ég hef vanið mig á að hlúa vel að sjálfri mér líka þegar ég er á ferðalagi. Ég bý alltaf til tíma fyrir hugleiðslu, göngutúra eða jóga.“

Hvað ertu með í handfarangri?

„Ég tek með mér andlitsmaska, bók og fleiri snyrtivörur. Ef ég er að ferðast með dóttur minni þá tek ég með nokkur leikföng og snarl til þess að hafa ofan af fyrir henni. Þannig geta allir verið rólegir og ánægðir.“

Hvert ertu að fara næst?

„Mig langar mest til Parísar með eiginmanninum mínum til þess að sjá Eiffel-turninn. Svo hefur mig alltaf langað að gista á The Kimpton St. Honoré Paris sem er gullfallegt hótel.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert