Stórleikarinn Chris Hemsworth er staddur á Íslandi um þessar mundir ásamt ellefu ára gamalli dóttur sinni, Indiu Rose. Feðginin hafa átt ævintýralega daga hér á klakanum og fóru meðal annars í veiði þar sem þau veiddu fallegan villtan lax.
Hemsworth birti skemmtilega myndaröð frá veiðiferðinni í gær með yfirskriftinni: „Kvöldmaturinn græjaður, takk Indi!!“ Á myndunum má sjá feðginin klædd í vöðlur í fallegu haustveðri við ána, en á einni af myndunum heldur dóttir hans á myndarlegum laxi.
Leikarinn hefur verið duglegur að birta myndir frá Íslandsferðinni á Instagram og virðast feðginin aðallega hafa verið á ferðalagi um Suðurland. Þau skelltu sér í hestaferð skammt frá Hellu, fóru í klifur á Sólheimajökli og í fjórhjólaferð á svipuðum slóðum.