Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir átti notalega helgi með kærasta sínum Ryan fyrir norðan þar sem þau nutu þess besta sem Akureyri hefur upp á að bjóða.
Tanja Ýr og Ryan hafa verið saman í rúmlega tvö ár, en hún flutti til Lundúna í byrjun 2022 og greindi frá því í stuttu síðar að hún væri komin með kærasta.
Síðastliðna helgi átti parið góða helgi á Akureyri þar sem þau fóru meðal annars í Skógarböðin, borðuðu góðan mat, skelltu sér í Bjórböðin og nutu þess að skoða náttúrufegurðina sem einkennir Norðurlandið.
Tanja Ýr birti myndaröð frá helginni á Instagram með yfirskriftinni: „Besta helgin“.