Nýverið birti Annabel Fenwick Elliott, breskur pistlahöfundur á Telegraph, pistil um upplifun sína af því að búa á Íslandi. Hún varð hugfangin af landinu eftir þriggja daga ferðalag árið 2018. Fjórum árum síðar flutti hún til landsins ásamt fjölskyldu sinni en sá fljótt eftir því.
Í pistlinum segir Elliott Ísland vera frábæran stað til að ferðast á en hræðilegan stað til að búa á. Hún mælir með að allir ferðalangar geri eftirfarandi fimm hluti þegar þeir heimsækja Ísland.
„Fyrst, Bláa Lónið. Já, þetta er það ferðamannalegasta sem þú getur gert, en ekki að ástæðulausu – þessi hlýja, ljósbláa jarðhitasúpa er dásamleg. Það er bar sem hægt er að synda upp að, kísilleir til að skella á allan líkamann og margt fýsilegt. Ef þú átt peninga til að brenna skaltu skoða Retreat-hótelið á svæðinu,“ segir Elliott.
Hún mælir einnig með ferð í Sky Lagoon, þá helst að kvöldi til, og böðunum í Hvammsvík með útsýni yfir hafið.
„Eitt best geymda leyndarmál Íslands, sem við fréttum ekki einu sinni af fyrr en stuttu áður en við fluttum í burtu, er hin litla eyja Heimaey sem er hluti af Vestmannaeyjum og í aðeins 45 mínútna fjarlægð með ferju frá meginlandinu,“ segir Elliott.
„Hún er heimkynni stærstu lundabyggðar heims og fyrsta griðasvæði hvíthvala, svo dýralífsunnendur verða í skýjunum. Vertu svo viss um að eyða að minnsta kosti einni nóttu í Glamping & Camping í Vestmannaeyjum þar sem þú getur sofið í „rustískum“ Hringadrottinssögulegum skálum rétt við ströndina,“ bætir hún við.
Unnusti Elliott starfaði sem þyrluflugmaður á Íslandi þegar þau voru búsett hér, en hún segir hann hafa flogið með fullt af ríkum viðskiptavinum sem hafi reglulega ferðast með þyrlum. „Þeir sögðu stöðugt að þetta væri magnaðasta land sem þeir hefðu flogið yfir, og það er í raun engin önnur leið til að sjá svo mikið af því og frá slíku sjónarhorni á einum degi,“ segir hún.
„Ljósmyndaáhugafólk sem eru í leit að fallegum myndum til að fanga í næsta fríi sínu finna varla betri stað en Ísland; það er heilsárssinfónía eldfjalla, jökla, fossa og hvera,“ segir Elliott og mælir með ferðum á vegum franska ljósmyndarans Kévin Pagès.
Elliott segir suma af áhugaverðustu stöðum landsins vera á suðurlandi, allt frá Seljalandsfossi og Skógafossi yfir í íshella við Kötlu og svarta sandströnd við Vík.